Úttekt Viðskiptablaðsins á efstu sætum framboðslista stjórnmálaflokkanna sýnir að tæplega 60% frambjóðenda eru annaðhvort stjórnmálamenn eða opinberir starfsmenn.

Í úttektinni eru störf þeirra sem skipa fimm efstu sætin á listum þeirra flokka sem nú eiga sæti á þingi skoðuð. Störfin eru flokkuð með eftirfarandi hætti:

  • Í fyrsta lagi almenni markaðurinn. Í þennan flokk voru þeir frambjóðendur sem starfa hjá einkafyrirtækjum, verktakar, sjálfstætt starfandi og bændur.
  • Í öðru lagi voru stjórnmálamenn teknir í sérflokk og auk sitjandi alþingismanna og þeirra sem hafa stjórnmál að ævistarfi voru sveitarstjórnarfulltrúar stærri sveitarfélaga settir í þennan flokk.
  • Þriðji hópurinn er opinberi geirinn og ekki þarf að orðlengja um hverjir eru í þeim flokki.
  • Í næsta hópi voru þeir sem starfa hjá hinum svokallaða þriðja geira settir en þar er um að ræða félagasamtök, hagsmunasamtök og íþróttahreyfinguna svo dæmi séu tekin.

Tæplega þriðjungur úr einkageiranum

Í efstu sætum hjá Viðreisn eru hlutfallslega fleiri sem koma frá almenna markaðnum, samanborið við flesta aðra flokka.

30% frambjóðenda flokksins, sem mælist með tæplega 15% fylgi í Þjóðarpúlsi Gallup, koma úr einkageiranum.

Um 60% frambjóðenda kemur frá hinu opinbera. Þar af er fjórðungur úr röðum stjórnmálanna.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild hér.