Þrjár tilkynningar um hópuppsögn bárust Vinnumálastofnun í maí.
Samkvæmt tilkynningu frá Vinnumálastofnun var 20 starfsmönnum sagt upp á sviði heilbrigðisþjónustu í síðasta mánuði.
Þá var 80 starfsmönnum á sviði framleiðslu á kísil sagt upp og 34 starfsmönnum á sviði matvæla.
Þeim sem var sagt upp í kísilframleiðslu störfuðu hjá PCC Bakka en greint var frá tímabundinni rekstrarstöðvun félagsins í maí.
Hópuppsögn telst vera hópuppsögn ef fjöldi fastráðins starfsfólks sem segja á upp á 30 daga tímabili er:
- a.m.k. 10 starfsmönnum í fyrirtækjum er sagt upp störfum með 16-100 starfsmenn
- a.m.k. 10% starfsmanna í fyrirtækjum, eða 100-300.
- a.m.k. 30 manns í fyrirtækjum með 300 starfsmenn eða fleiri.
Þannig telst það ekki vera hópuppsögn ef öllu starfsfólki í fyrirtæki með færri en 16 starfsmenn er sagt upp störfum.