Volvo hefur tilkynnt að bílaframleiðandinn muni segja upp þrjú þúsund starfsmönnum í hagræðingarskyni. Á vef WSJ segir að félagið vilji einnig auka skilvirkni á krefjandi alþjóðlegum bílamarkaði.

Sænski bílaframleiðandinn varaði við því í síðasta mánuði að uppsagnir væru í vændum og að fyrirtækið leitaðist við að spara um 1,89 milljarða dala í rekstrarkostnaði.

Hakan Samuelsson, forstjóri Volvo sem var endurráðinn fyrir tveimur mánuðum, sagði í dag að áætlunin væri mikilvæg þar sem hún myndi gera félagið sterkara. „Bílaiðnaðurinn stendur frammi fyrir krefjandi tímum. Til að takast á við þetta verðum við að bæta sjóðstreymi okkar og lækka kostnað með kerfisbundnum hætti.“

Uppsagnirnar munu aðallega bitna á skrifstofustarfsfólki Volvo í Svíþjóð en þar munu um 1.200 manns missa vinnuna. Rúmlega þúsund aðrir ráðgjafar sem eru aðallega búsettir í Svíþjóð munu einnig koma til með að missa vinnuna.