Kínverska ríkisstjórnin segir að hún sé tilbúin að fjarlægja alla tolla á vörur sem fluttar eru til landsins frá þeim 53 Afríkuríkjum sem Kína á í stjórnmálasambandi við. Á vef BBC segir að tillagan sé gerð vegna mögulegrar tollaaukningar á álfuna frá Bandaríkjunum.
Kína er stærsta viðskiptaland Afríku og hefur verið það undanfarin 15 ár. Árið 2023 fluttu Afríkulönd út 170 milljörðum dala virði af vörum til Kína.
Þessi mögulega aðgerð var tilkynnt á samstarfsfundi Kína og Afríku en í sameiginlegri yfirlýsingu gagnrýndu ráðherrar tilraunir „ákveðinna landa“ til að raska núverandi alþjóðlega efnahags- og viðskiptalíkani.
Kínverjar hafa áður fyrr fellt niður tolla á Afríkuríki en í fyrra var ákveðið að fjarlægja alla tolla á vörur frá 33 Afríkuríkjum sem talin voru minnst þróuð. Meðal þeirra ríkja sem koma til með að prýða nýja listann eru Suður-Afríka og Nígería.
Eswatini, sem áður hét Swaziland, er eina Afríkuríkið sem er skilið út undan en það ríki viðurkennir Taívan sem sjálfstætt land.
Kínverjar hafa ekki gefið upp hvenær þessi aðgerð tæki gildi en þjóðin flytur inn mikið af hráefnum frá Afríku, sérstaklega frá Lýðveldinu Kongó og Gíneu. Þjóðin hefur jafnframt hvatt Bandaríkin til að virða gagnkvæm viðskipti en í apríl setti Donald Trump 50% toll á vörur frá Lesótó, 30% toll á Suður-Afríku og 14% toll á Nígeríu.