Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins spurði Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra um hvernig staðið var að vali í stjórnir Íslandspósts og Isavia en bæði ríkisfyrirtækin skiptu út fjórum af fimm stjórnarmönnum í vikunni.

Tilkynnt var um nýtt verklag um miðjan febrúar sem samþykkt hafði verið undir lok síðasta þings.

Bergþór rifjaði upp ummæli Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur þingmanns skömmu eftir breytinguna er hún spurði í léttum tón en samt með alvarlegum undirtóni: „Verða þetta bara vinir Viðreisnar sem tilnefna aðra vini Viðreisnar?“

„Í gær voru tveir aðalfundir, annars vegar hjá Isavia og hins vegar hjá Íslandspósti. Og nú vill svo til að í þessum tveimur stjórnum var öllum stjórnarmönnum skipt út nema einum í stjórn Isavia og það hittir þannig á að sá stjórnarmaður sem heldur áfram er sá sem var tilnefndur af Viðreisn í fyrri stjórn,“ sagði Bergþór á Alþingi í gær.

Daði Már skipaði í byrjun mánaðar valnefndir sem fengu það verkefni að tilnefna tvo aðila fyrir hvert stjórnarsæti, en ráðherra velur úr þeim hópi í stjórnirnar.

„Hjá Íslandspósti komu allir nýir stjórnarmenn inn í aðalstjórn en það átti við um einn þeirra að sá hafði setið í varastjórn Íslandspósts árið á undan, og sá var tilnefndur af Viðreisn. Er þetta tilviljun?“ spurði Bergþór á Alþingi í gær.

Daði Már sagðist kunna þessum aðdróttunum frekar illa og sagðist ekki finnast bragur á því þegar þingmenn „gagnrýna þá sem ekki geta varið sig, í þessu tilfelli valnefndina.“

Hann sagði engar breytingar hafa verið gerðar á valnefndum milli ríkisstjórna.

„Fyrirkomulagið er með þessum hætti: Valnefndin skilar tíu nöfnum. Síðan er farið yfir þá niðurstöðu með tilliti til hæfis viðkomandi tíu aðila, til kyns þeirra og svo er skipað í stjórnina þannig að í henni sé fólk með hæfileika á öllum sviðum. Annað er ekki skoðað. Ég kann þessum aðdróttunum frekar illa,“ sagði Daði.

„Ekki viðbúið að ráðherra myndi opinbera nálgunina svona hratt“

Bergþór gaf lítið fyrir svör Daða Más og sagði að hann hefði fengið að velja úr tveimur fulltrúum í hvert stjórnarsæti.

„Fyrir þessi tvö fyrirtæki sem var skipað í stjórnir fyrir í gær komu 20 tilnefningar og það hittist bara þannig á að hæstvirtur ráðherra, sem á auðvitað endanlega valið, velur í báðar stjórnirnar fyrri fulltrúa Viðreisnar. Í báðum tilvikum er augljóst að ráðherra átti úr fleiri kostum að velja. Þannig að þó að ráðherra líði illa með þetta, og ég skil það, þá auðvitað var ekki viðbúið að ráðherra myndi opinbera nálgunina svona hratt,“ sagði Bergþór og bætti við hann bjóst við það myndi gerast síðast í ferlinu.

„Það sem blasir við er að hæstvirtur ráðherra velur það að skipa fyrri fulltrúa Viðreisnar en gera breytingar á öllum öðrum póstum. Þetta er það sem óttast var. Í þessu er engin gagnrýni á valnefndirnar. Valnefndirnar lögðu til tvo fulltrúa á hvern póst samkvæmt reglunum,“ sagði Bergþór að lokum.