Hveragerðisbær og Reykjadalsfélagið hafa náð samningi um viðamikla ferðaþjónustuuppbyggingu á Árhólmasvæðinu í Hveragerði en fyrsti áfangi uppbyggingarinnar verða náttúruböð sem hafa fengið nafnið Reykjaböðin.
Samkvæmt fréttatilkynningu er verkefnið fullfjármagnað og framkvæmdir hafnar.
Samningurinn felur í sér kaup Reykjadalsfélagsins á byggingarrétti og úthlutun lóða ásamt uppbyggingu svæðisins. Árhólmasvæðið liggur við rætur Reykjadalsins sem er ein vinsælasta náttúruperla Suðurlands en þangað sækja hundruð þúsunda manna á hverju ári til að njóta útivistar og göngu að heita læknum.
„Árhólmasvæðið liggur við rætur Reykjadalsins sem er ein vinsælasta náttúruperla Suðurlands en þangað sækja hundruð þúsunda manna á hverju ári til að njóta útivistar og göngu að heita læknum. Reykjadalsfélagið er fyrir með starfsemi á Árhólmasvæðinu en á árinu 2021 opnaði Reykjadalsskálinn sem þjónustar veitingar, verslun og salerni ásamt upplýsingagjöf,“ segir í fréttatilkynningu.

Á svæðinu er einnig starfrækt afþreyingarstarfsemi þar sem boðið er upp á hjólaferðir og nýverið opnaði ein lengsta sviflína (e. mega zipline) í Evrópu.
Að Reykjadalsfélaginu standa félögin Hveraberg og Dionysus sem eru sömu aðilar og byggðu áfangastaðinn Gróðurhúsið í Hveragerði og hótelið The Greenhouse Hotel.
„Samstarf Reykjadalsfélagsins við Hveragerðisbæ og íbúa hefur verið farsælt undanfarin ár og því ánægjulegt að náðst hafi samningar um frekari uppbyggingu félagsins í bænum,“ segir fréttatilkynningu.

© Aðsend mynd (AÐSEND)
„Það hefur verið afar áhugavert að fylgjast með uppbyggingu Reykjadalsfélagsins í Hveragerði á undanförnum árum. Við erum ánægð með þennan stóra samning sem verður mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna, atvinnulífið og samfélagið í bænum.“ segir Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, formaður bæjarráðs Hveragerðisbæjar.

„Samstarfið við Hveragerðisbæ hefur verið frábært og það er mikil ánægja hjá okkur í Reykjadalsfélaginu að hafa náð þessum tímamótasamning. Við erum fullir tilhlökkunar með uppbygginguna fram undan,“ segir Brynjólfur J. Baldursson, stjórnarformaður Reykjadalsfélagsins.