Árið 1994 var litríkur fatnaður sem einkenndi seinni hluta tíunda áratugarins við það að taka við af grugg-tískunni sem hafði einkennt fyrri hluta áratugarins. Afslappaður fatnaður var vinsæll meðal yngri kynslóðarinnar og viðskiptamenn sóttu innblástur í tísku níunda áratugarins.

Hinn eini sanni hefndarkjóll

Ekki er hægt að tala um tísku ársins án þess að minnast á svokallaðan hefndarkjól (e. the revenge dress) sem Díana prinsessa klæddist á góðgerðarviðburði Vanity Fair í London sumarið 1994.

Svarta silkikjólnum, sem hönnuðurinn Christina Stambolian hannaði, klæddist Díana sama kvöld og Karl Bretaprins játaði í sjónvarpsviðtali að hafa haldið fram hjá henni en þau höfðu verið skilin að borði og sæng í tvö ár. Viðburðurinn markaði þáttaskil hjá prinsessunni og var kjóllinn til marks um aukið sjálfstæði hennar.

Hefndarkjóll Díönu er ógleymanlegur.

Voldugur stíll viðskiptamanna

Í viðskiptalífinu sóttu karlmenn sér innblástur frá níunda áratugnum þar sem tvíhnepptir jakkar í yfirstærð með axlapúðum voru áberandi.

Haldið var í jarðtóna í litavali þar sem mynstruð silkibindi voru áberandi og voru menn vel snyrtir. Stíllinn var oft kenndur við viðskiptamenn á Wall Street í Bandaríkjunum og hér á landi voru það einna helst bankamenn sem klæddust þessum stíl.

Hjá konum voru buxna- og kjóladragtir í svipuðum stíl vinsælar auk látlausra skartgripa.

Auglýsing frá Oscar de la Renta frá árinu 1994.

H&M loksins á Íslandi

Fyrir tíma netverslunarinnar voru pöntunarlistar vinsælir og þegar flett er í gegnum gömul dagblöð sést að úr ýmsu var að velja árið 1994.

Þar má meðal annars nefna póstlista fyrir sænsku verslunina H&M þar sem yfirskriftin var „Loksins á Íslandi“.

Fyrsta H&M verslunin opnaði loks í Kringlunni rúmum tveimur áratugum síðar.

Auglýsing úr Morgunblaðinu í ágúst 1994.

Nánar er fjallað um málið í nýútkomnu 30 ára afmælistímariti Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér.