Óli Björn Kárason

Fyrsti ritstjóri Viðskiptablaðsins var stofnandi blaðsins, Óli Björn Kárason. Áður en hann stofnaði Viðskiptablaðið hafði Óli Björn meðal annars verið framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins og blaðamaður á Morgunblaðinu.

Árið 1994 þótti mörgum í atvinnulífinu að þörf væri á fjölmiðli sem sinnti viðskiptalífinu sérstaklega, en eitthvað þótti mönnum að á það vantaði í fjölmiðlaumfjöllun á Íslandi. Undir stjórn Óla Björns óx blaðið og dafnaði og náði að stimpla sig rækilega inn sem fjölmiðill sem mark var takandi á. Í lok árs 1999 ákvað Óli Björn að söðla um og varð ritstjóri DV til ársins 2003. Óli Björn átti svo eftir að koma aftur inn á Viðskiptablaðið, en þá í hlutverki útgáfustjóra og starfaði hann sem slíkur til ársins 2007.

Eftir þetta hefur Óli Björn ýmislegt gert. Hann var sjálfstætt starfandi blaðamaður og ráðgjafi um tíma, aðstoðarmaður Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra á árinu 2014 og útgefandi og ritstjóri Þjóðmála. Árið 2016 var Óli Björn kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Var hann þingmaður og allt þar til haustið 2024 og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins frá 2021 til 2023. Óli Björn gaf ekki kost á sér til endurkjörs í kosningunum 30. nóvember í fyrra.

© Þröstur Njálsson (Þröstur Njálsson)

Ari Edwald

Eftirmaður Óla Björns var Ari Edwald, þáverandi aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra. Ari átti hins vegar ekki eftir að stoppa lengi við á blaðinu, því í september 1999 var hann ráðinn framkvæmdastjóri hinna nýstofnuðu Samtaka atvinnulífsins.

Árið 2005 var hann svo ráðinn forstjóri fjölmiðlasamsteypunnar 365. Því starfi gegndi hann til ársins 2014. Árið 2015 var Ari ráðinn forstjóri Mjólkursamsölunnar og í júní 2019 tók hann við stjórn Ísey útflutnings, dótturfyrirtækis MS, en því starfi gegndi hann til ársins 2022.

© HAG / AÐSEND (HAG / AÐSEND)

Örn Valdimarsson

Örn Valdimarsson, sem verið hafði blaðamaður á Viðskiptablaðinu frá stofnun þess, tók við af Ara árið 1999 og gegndi ritstjórastarfinu í fimm ár. Undir hans stjórn var útgáfudögum fjölgað úr einum í tvo og Fiskifréttir bættust í útgáfuflóru blaðsins.

Örn hætti sem ritstjóri í árslok 2004. Síðan þá starfaði hann lengst af hjá Eyri Invest, þar á meðal sem framkvæmdastjóri Eyrir Venture Management. Árið 2023 söðlaði hann um þegar hann var ráðinn til PwC, þar sem hann er í eigendahópi og gegnir lykilhlutverki í fyrirtækjaráðgjöf.

© Aðrir ljósmyndarar (VB MYND)

Gunnlaugur Árnason

Gunnlaugur Árnason var ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins í apríl 2005 en þá hafði Jónas Haraldsson gegn starfinu tímabundið í nokkra mánuði. Gunnlaugur hafði verið blaðamaður hjá Reuters í London þar sem hann sérhæfði sig í fjármálafréttum.

Gunnlaugur gegndi ritstjórastarfinu í tvö ár eða fram á vor 2007. Frá þeim tíma hefur Gunnlaugur sinnt ýmsum ráðgjafastörfum og setið í stjórnum ýmissa félaga. Frá 2019 til 2023 starfaði hann sem yfirmaður markaðs -og samskiptamála Sidekick Health.

Jónas Haraldsson

Jónas Haraldsson tók aftur við stjórnartaumunum þegar Gunnlaugur ákvað að fara á nýjar brautir í maí 2007. Jónas hafði þá verið aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins og hafði áratuga reynslu af blaðamennsku, meðal sem fréttastjóri Dagblaðsins og DV.

Jónas gegndi ritstjórastarfinu til ársins 2008. Hann var svo einn af stofnendum Fréttatímans árið 2010, þar sem hann starfaði bæði sem ritstjórnarfulltrúi og ritstjóri. Hann hætti störfum á Fréttatímanum í loks árs 2015.

© BIG (VB MYND/BIG)

Haraldur Johannessen

Í september 2007 var Haraldur Johannessen ráðinn ritstjóri við hlið Jónasar. Þegar Jónas hætti störfum hjá blaðinu í júlí 2008 varð Haraldur einn ritstjóri. Haraldur hafði verið blaðamaður á viðskiptablaði Morgunblaðsins um langa tíð, aðstoðarmaður utanríkisráðherra og sérfræðingur í Greiningardeild Landsbankans.

Haraldur var ritstjóri blaðsins þegar Ísland gekk í gegnum bankahrunið og þurfti að stýra blaðinu á mjög erfiðum tímum og var um tíma eigandi þess. Í september 2009 var Haraldur ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins og gegnir því starfi enn ásamt Davíð Oddssyni. Einnig er Haraldur framkvæmdastjóri útgáfufélagsins Árvakurs.

© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)

Sigurður Már Jónsson

Sigurður Már Jónsson tók við af Haraldi haustið 2009. Sigurður Már hóf blaðamennskuferilinn árið 1985 og starfaði lengst af á Viðskiptablaðinu en áður en hann varð ritstjóri hafði hann verið fréttastjóri og aðstoðarritstjóri blaðsins.

Sigurður Már var ritstjóri Viðskiptablaðsins þar til í mars árið 2010. Hann hefur gegnt ýmsum störfum síðustu ár, ber helst að nefna að árið 2013 var hann ráðinn upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar og gegndi því starfi til ársins 2017. Síðan þá hefur hann m.a. starfað fyrir Miðflokkinn og sinnt ýmsum ráðgjafastörfum auk þess að skrifa bækur og reglulega pistla í Morgunblaðið. Þá hefur hann haldið úti Hluthafaspjallinu, sem er hlaðvarpsþáttur hans og Jóns G. Haukssonar.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Björgvin Guðmundsson

Björgvin Guðmundsson tók við af Sigurði Má í mars 2010. Björgvin hafði áður verið blaðamaður á fjölda miðla, ritstjóri DV, ritstjóri Markaðarins, viðskiptarits Fréttablaðsins, og fréttastjóri viðskipta hjá Morgunblaðinu. Björgvin hafði einnig verið aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins frá haustinu 2009.

Björgvin var ritstjóri blaðsins í þrjú ár, en hætti störfum í lok árs 2013 til að hefja eigin rekstur hjá almannatengslafyrirtækinu KOM. Þar hefur Björgvin starfað síðan.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Bjarni Ólafsson

Bjarni Ólafsson var ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins í janúar 2014. Hann hafði þá um árabil starfað við blaðamennsku og sérhæft sig í skrifum um viðskipti. Hann byrjaði á Morgunblaðinu um aldamótin en árið 2011 færði hann sig til Viðskiptablaðsins.

Bjarni hætti sem ritstjóri vorið 2017. Eftir það var hann ráðinn til starfa sem ráðgjafi hjá auglýsingastofunni Jónsson & Lemacks, sem árið 2019 sameinaðist Aton og er hann við störf þar í dag.

© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Trausti Hafliðason

Trausti Hafliðason tók við ritstjórn Viðskiptablaðsins í júní 2017. Trausti er reynslumikill blaðamaður en hann hóf sinn feril skömmu fyrir síðustu aldamót á Morgunblaðinu. Árið 2001 færði hann sig yfir á Fréttablaðið og var fréttastjóri þar um árabil. Hann var einnig ritstjóri Blaðsins um skeið.

Árið 2013 var Trausti ráðinn til Viðskiptablaðsins og árið 2015 varð hann aðstoðarritstjóri þess. Hann er ritstjóri Viðskiptablaðsins enn í dag og hefur því gegnt starfinu lengst allra ritstjóra eða í átta ár.

Umfjöllunin birtist í 30 ára afmælisriti Viðskiptablaðsins, sem var að koma út.