Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur staðfest að hann muni framfylgja áætlun sinni um að leggja 25% innflutningstoll á vörur frá Kanada og Mexíkó. Að öllu óbreyttu taka tollarnir gildi á ríkin tvö á morgun, laugardaginn 2. febrúar.

Hann hefur hins vegar ekki tekið ákvörðun um það hvort innflutt olía muni njóta undanþágu frá tolllagningunni.

Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu sagði Trump að aðgerðirnar hefðu það markmið að takast á við þann fjölda innflytjenda og fentanýls sem fer yfir landamæri Bandaríkjanna og viðskiptahallann sem þjóðin býr við.

Trump bætti einnig við að hann muni standa við loforð sitt um að leggja 10% toll á innfluttar vörur frá Kína en í kosningabaráttunni hafði hann hótað allt að 60% tollum á landið.

Innflutningur á kínverskum vörum til Bandaríkjanna hefur dregist saman síðan 2018, að hluta til vegna þeirra tolla sem Trump setti á Kína á fyrsta kjörtímabilinu sínu, og eru nú á svipuðum stað og þær voru árið 2011.