Hvik­lyndi hefur ein­kennt skulda­bréfa­markaðinn vestan­hafs síðustu daga á meðan fjár­festar virðast ó­á­kveðnir um hvernig vaxta­lækkunar­ferli seðla­bankans verður háttað.

Á föstu­daginn greindi vinnu­mála­ráðu­neyti Banda­ríkjanna frá því að 254 þúsund ný störf yrðu til í síðasta mánuði.

Spár greiningar­aðila voru að á­ætla um 150 þúsund ný störf í mánuðinum og því ljóst að vinnu­markaðurinn er mun öflugri en gert var ráð fyrir.

Á­vöxtunar­krafa ríkis­skulda­bréfa til tíu ára tók við sér að nýju eftir að hafa verið á stöðugri niður­leið síðan í apríl­mánuði. Krafan hækkaði um 0,13% í dag og fór upp í 4,02% en þegar krafan hækkar lækkar virði skulda­bréfsins.

Sam­kvæmt Financial Times eru fjár­festar að búa sig undir enn frekara flökt á morgun þegar verð­bólgu­tölur verða birtar.