Norski olíusjóðurinn, stærsti þjóðarsjóður heims, tapaði nýverið um 92 milljónum Bandaríkjadala eða um 12,6 milljarða íslenskra króna vegna Excel-villu.
„Í febrúar á þessu ári voru uppgötvuð reikningsmistök í vísitöluviðmiði,“ segir í tilkynningu Noregsbanka sem stýrir sjóðnum en Financial Times greinir frá.
Samkvæmt FT hefur olíusjóðurinn gert sambærileg mistök áður enda fylgir því töluverður útreikningur að sjá um stærsta fjárfestingasjóð heims. Eignir norska olíusjóðsins eru metnar á 1.5 þúsund milljarða Bandaríkjadali.
Mistök sjóðsins hafa þó aldrei verið svona kostnaðarsöm, tapið vegna reiknivillunnar er tvöfalt meira en allar reiknivillur sjóðsins á árunum 2010 til 2020.
Mistökin áttu sér stað um vorið 2022 en norska fjármálaráðuneytið uppgötvaði reiknivilluna undir lok síðasta árs.
Sjóðurinn hefur unnið skýrslu um mistökin en þar er einungis talað um að mistökin hafi verið framkvæmd í „risastórri“ reiknitöflu (e. spreadsheet) sem verið var að vinna í.
Þá hefur FT eftir Patrick du Plessis, yfirmanni áhættueftirlits hjá olíusjóðnum, að honum hafi liðið líkamlega illa þegar honum var greint frá mistökunum.