Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað fyrirskipun um að hætta fjármögnun á fréttasamtökunum Voice of America en forsetinn segir þau vera róttæk og vinni gegn sér. Aðrir stjórnmálamenn og hægrisinnaðir fjölmiðlar hafa einnig gagnrýnt VOA.
Mike Abramowitz, forstjóri VOA, segir að hann og nánast allir 1.300 starfsmenn sem þar vinna hafi verið settir í launað leyfi.
Voice of America er fyrst og fremst útvarpsstöð en hún var stofnuð í seinni heimsstyrjöldinni til að vinna gegn áróðri nasista. Útvarpsstöðin segir að hún nái til hundruð milljóna manna á heimsvísu í hverri viku.
Bandaríska blaðamannafélagið The National Press Club segir þróunina mjög áhyggjufulla og spyr hver staðan á fjölmiðlafrelsi í Bandaríkjunum sé ef hægt er að taka heila fréttastofu úr umferð á einni nóttu.
Tilskipun forsetans beinist gegn móðurfyrirtæki VOA, US Agency for Global Media (USAGM) en það rekur einnig útvarpsstöðvarnar Radio Free Europe og Radio Free Asia, sem stofnaðar voru á tímum kalda stríðsins til að vinna gegn kommúnisma.
Stjórnendur beggja stöðva fengu tölvupóst þar sem þeim var tilkynnt að búið væri að segja upp ríkisstyrkjum þeirra. Jan Lipavský utanríkisráðherra Tékklands segist vona að Evrópusambandið gæti hjálpað við að halda Radio Free Europe gangandi í Prag.