Donald Trump hefur hótað Apple og Samsung 25% innflutningstollum á snjalltæki fyrirtækjanna nema þau færi framleiðslu á tækjunum alfarið til Bandaríkjanna.

Á samfélagsmiðlinum Truth Social skrifaði Trump á föstudag sl. að hann hefði lengi látið Tim Cook, forstjóra Apple, vita af væntingum sínum um að iPhone-símar fyrir bandarískan markað yrðu framleiddir innanlands. Hann nefndi í sömu færslu að tollurinn muni einnig gilda um snjalltæki frá Samsung og öðrum sambærilegum fyrirtækjum.

Apple hefur nýverið aukið framleiðslu sína í Indlandi, þar sem Foxconn og Tata Electronics hafa byggt nýjar verksmiðjur. Samkvæmt nýjustu tölum er tæplega þriðjungur iPhone-síma framleiddur í Indlandi.

Fjárfestar brugðust illa við yfirlýsingum Trumps, en hlutabréf Apple lækkuðu t.a.m. um 3% á föstudaginn sl. Greiningaraðilar segja það gríðarlega kostnaðarsamt að flytja framleiðslu á Apple snjalltækjum til Bandaríkjanna og að slíkt tæki mörg ár. Trump telur hins vegar að Apple geti framleitt snjalltæki innanlands og selt á viðráðanlegu verði með hjálp sjálfvirknivæðingar.