Trump-fjölskyldan hefur tilkynnt að hún muni stofna farsímaþjónustufyrirtæki sem kallast Trump Mobile. Á vef WSJ segir jafnframt að áform séu um að framleiða eigin snjallsíma, sem kallast T1, sem mun keppa við snjallsíma frá Apple og Samsung.
Forsetinn hefur undanfarið beint spjótum sínum að símaframleiðendum og hefur meðal annars hótað aukatollum á Apple ef fyrirtækið færir framleiðslu sína ekki til Bandaríkjanna.
Raftækjasamsetning hefur á undanförnum árum verið að færast frá Kína yfir til landa eins og Indlands og Víetnam en enginn snjallsímaframleiðandi hefur þó framleitt vörur sínar í Bandaríkjunum.
Fyrirtæki Trump, sem er stjórnað af sonum hans, segir að nýi Android-síminn muni kosta 499 dali, eða um 62 þúsund krónur, og er þegar hægt að panta símann fyrir fram á vefsíðu fyrirtækisins, sem gefur ekki upp hver framleiðandinn er.
Viðskiptavinir geta hins vegar byrjað að notað farsímaþjónustuna og síðan keypt T1-símann í ágúst. Áskrift þjónustunnar, sem kallast 47 Plan, kostar 47,45 dali á mánuði, eða 5.800 krónur.