Trevor Milton, stofnandi vörubílaframleiðandans Nikola sem varð nýlega gjaldþrota, hefur verið náðaður af Donald Trump Bandaríkjaforseta en hann hefur meðal annars verið dæmdur fyrir svik.

Nikola sótti um greiðslustöðvun í síðasta mánuði en fyrirtækið hafði sérhæft sig í framleiðslu þungra rafknúinna vörubíla. Þá var Nikola fyrsta fyrirtækið til að selja tvinnbíla sem gengu fyrir bæði rafmagni og metangasi.

Milton segir frá þessu á samfélagsmiðlum en hann var dæmdur árið 2023 fyrir að hafa logið að fjárfestum um tækni og getu fyrirtækisins síns.

„Í dag fékk ég fulla og skilyrðislausa náðun frá sjálfum Donald Trump. Hann hringdi persónulega í mig til að segja mér það,“ skrifar Milton á Instagram-síðu sinni.