Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ekki hafa áhuga á að ræða við Elon Musk, forstjóra Tesla, eftir að deilur milli þeirra tveggja komust í hámæli í gær.
Musk hefur að undanförnu gagnrýnt harðlega fjárlagafrumvarp Trumps sem liggur fyrir öldungadeildarþingi Bandaríkjanna. Trump sagði Musk, sem var einn helsti ráðgjafi sinn þar til fyrir viku síðan, hafi orðið „klikkaður“ og hótaði að slíta samningum ríkisins við félög á vegum Musk, þar á meðal SpaceX.
Politico greindi frá því morgun að unnið væri að því að stilla til friðar milli Musk og Trumps og símtal milli þeirra væri í farvatninu. Trump sagði hins vegar við CNN í dag að hann hafi ekki áhuga á að ræða við Musk á næstunni.
„Ég er ekkert að hugsa um Elon. Hann á við vandamál að stríða. Greyið maðurinn á við vandamál að stríða.“
Starfsmannastjóri Hvíta hússins, Susie Wiles, tjáði NBC News að ekkert símtal væri á dagskrá í dag, spurð um ofangreinda frétt Politico.