Íslenska erfða- og líftæknifyrirtækið Arctic Therapeutics (ATx) hefur tryggt sér A-fjármögnun (e. Series A) að virði 26,5 milljóna evra, sem samsvarar tæplega fjórum milljörðum íslenskra króna, í kjölfar töluverðrar umframeftirspurnar.
Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance og lögfræðistofan BBA//Fjeldco veittu ATx aðstoð í fjármögnunarferlinu.
Bæði erlendir og innlendir fjárfestar tóku þátt í fjármögnuninni, þar á meðal EIC Fund, norræna rannsóknarsamstæðan Sanos Group, Kaldbakur, svissneska félagið Cerebrum DAO, bandaríski milljarðamæringurinn Jeffrey Lurie, sem er einna þekktastur fyrir að gegna stöðu framkvæmdastjóra (e. CEO) NFL-liðsins Philadelphia Eagles, og hópur snemmfjárfesta og meðstofnenda líftæknifélaganna Kerecis og Chemometec, auk íslenskra einka- og fagfjárfesta.
Jeppe Ragnar Andersen, forstjóri Sanos Group, sem er í eigu fjárfestingafélagsins Investcorp, tekur sæti í stjórn fyrirtækisins fyrir hönd nýrra hluthafa.
Fjármagnið verður fyrst og fremst nýtt til þess að hefja frekari klínískar rannsóknir á tveimur af fremstu lyfjum félagsins til meðferðar við heilabilun (e. dementia) og húðbólgusjúkdómum.
Haft er eftir Ívari Hákonarsyni, meðstofnanda og forstjóra ATx, að fjármögnunin sé mikilvægur áfangi á vegferð félagsins við að þróa „öruggar og árangursríkar lyfjameðferðir við sumum af erfiðustu sjúkdómum veraldar, þar á meðal heilabilun.“
ATx var stofnað af Dr. Hákoni Hákonarsyni, lækni og sérfræðingi í lungna- og genarannsóknum við Center of Applied Genomics (CAG) í Bandaríkjunum, og syni hans Ívari. Fyrirtækið er með þrjú önnur lyf í þróun, þar á meðal lyf við Parkinson-sjúkdómnum.