Taívanski hálfleiðararisinn TSMC eða Taiwan Semiconductor Manufacturing Company mun frá og með árinu 2028 framleiða þróuðustu vörur sínar á bandarískri grund, nánar tiltekið í Arizona-fylki.

Fyrir það munu bandarísk stjórnvöld veita fyrirtækinu 6,6 milljarða dala styrk auk allt að 5 milljarða dala láns.

Tilkynnt var um áformin á mánudag þar sem fram kom að félagið hyggst reisa þriðju verksmiðju sína þar í landi, en við það jukust fjárfestingaráformin þar úr 40 milljörðum dala í 65, ígildi um 9 þúsund milljarða króna.

Þar verða framleiddar tveggja nanómetra litlar örflögur. Áformin eru sögð mikill sigur fyrir stjórnvöld í Washington sem hafa um nokkurt skeið leitast við að færa framleiðslu þessa nauðsynlega íhlutar í hverskyns tölvur til landsins, en félagið er það stærsta sinnar tegundar í heiminum og verðmætasta fyrirtæki heimalandsins, sem kínverska alþýðulýðveldið lítur svo á að tilheyri sér.