Viðskipti með lóðir á þéttingarreitum á höfuðborgarsvæðinu nema milljörðum króna og hefur verð á reitum hækkað nokkuð samhliða hækkandi fasteignaverði. Vænta má þess að lóðaverð fylgist að einhverju leyti að við hækkandi fasteignaverð.
Samkvæmt vísitölu Þjóðskrár Íslands hefur fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 25% undanfarið ár. Erfitt er að meta nákvæmlega verðhækkanir lóða enda eru þær sjaldnast á sama stað í skipulagsferlinu frá því að síðast áttu sér stað viðskipti með sömu lóð.
Sjá einnig: Áttu Orkureit í mánuð og högnuðust um 1,3 milljarða
Í könnun sem unnin var fyrir Samtök iðnaðarins í maí meðal stjórnenda stórra íslenskra verktakafyrirtækja töldu 72% að skortur á lóðum hefti uppbyggingu íbúða sem vænta má að ýti frekar undir hækkun fasteignaverðs.
Sjö milljarða sala á Ártúnshöfða
Kaup dótturfélags Þorpsins vistfélags ásamt hópi fjárfesta á byggingarétt að 80 þúsund fermetrum ofanjarðar á Ártúnshöfða í lok október 2021 eru líklega stærstu nýlegu lóðaviðskipti höfuðborgarsvæðisins. Þar stendur til að byggja 1.000- 1.200 íbúðir í nýju hverfi þar sem iðnaðarhúsnæði víkur fyrir íbúðabyggð.
Kaupverðið var sjö milljarðar króna. Seljandi var Árland ehf., félag í eigu Agros fjárfestingasjóðs, sem stofnaður var af GAMMA.
Nánar er fjallað um stærstu lóðaviðskipti síðustu missera í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.