Litháen og Eistland hafa heitið því að verða fyrstu ríkin innan Atlantshafsbandalagsins [Nato] til að verja meira en 5% af vergri landsframleiðslu [VLF] til varnarmála.

Þetta kemur fram í máli Kęstutis Budrys, utanríkisráðherra Litháen, og Kristen Michal, forsætisráðherra Eistlands.

Litháen hyggst þannig verja á bilinu 5% til 6% af VLF til varnarmála á árunum 2026-2030 og þannig tvöfalda útgjöldin úr 2,9% af VLF.

Eistland hyggst auka hlutfallið úr 3,7% upp í 5% á komandi ári.

Nato mun hækka markmið um útgjöld til varnarmála á leiðtogafundinum í júní úr 2% í 3 eða 3,5% af VLF að því er kemur fram í grein Financial Times. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur kallað eftir því að aðildarríki Nato verji minnst 5% af VLF til varnar- og öryggismála.