IS Haf fjárfestingar slhf., framtakssjóður í rekstri Íslandssjóða, hefur ásamt fleiri fjárfestum aukið við hlut sinn í norska líftæknifyrirtækinu Regenics AS, úr 20% í 38,5%. Kaupin eru í formi hlutafjáraukningar. Fjárfestingin fer fram í gegnum félagið Nordic Blue hf.

Um er að ræða framhald á hlutafjáraukningu sem tilkynnt var 13. ágúst síðastliðinn, þegar Nordic Blue eignaðist 20% hlut í Regenics. Við það fékk Nordic Blue jafnframt kauprétt sem nú hefur verið fullnýttur og leiðir til þess að Nordic Blue á nú 38,5% af útgefnu hlutafé í Regenics.

Félagið Nordic Blue hf., sem stofnað var í kringum fjárfestinguna í Regenics, samanstendur af fjárfestahóp, sem hafa m.a. þekkingu á húðlækningum og þróun lyfja, við hlið IS Haf fjárfestinga og Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja. Þar á meðal er Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, fyrrverandi forstjóri Actavis, sem einnig situr í stjórn Nordic Blue.

IS Haf fjárfestingar slhf. er stærsti hluthafinn í Nordic Blue hf. Sjóðurinn var stofnaður í febrúar 2023 og er í rekstri Íslandssjóða hf. Sjóðurinn, sem er 10 milljarðar að stærð, fjárfestir í haftengdri starfsemi á breiðum grunni. Stærstu fjárfestarnir í sjóðnum eru íslenskir lífeyrissjóðir ásamt Brim hf. og Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf. sem er kjölfestufjárfestir í sjóðnum.

Ráða nýjan framkvæmdastjóra hjá Regenics

Regenics AS hefur ráðið Jostein Grip sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins, sem áður gegndi stöðu tæknistjóra (CTO) hjá Oxy Solutions. Hann tekur við starfinu 1. ágúst. Karin Gilljam, sem gegnt hefur stöðu starfandi framkvæmdastjóra, snýr aftur í stöðu vísindastjóra (CSO).

Regenics AS framleiðir Collex®, háþróaðar sáraumbúðir, sem eru hannaðar til að bæta og flýta gróanda brunasára og langvinnra sára, þar með talin sár vegna sykursýki. Með Collex® stefnir Regenics AS að því að umbreyta hefðbundnum aðferðum í sárameðferð en hráefnið er að öllu leyti unnið úr hráefni úr hafinu. HTX™ er lífvirka efnið í Collex® og er unnið úr ófrjóvguðum laxahrognum. Collex® er nú á síðari stigum forklínískra rannsókna og hefur sýnt fram á marktæk jákvæð áhrif á gróanda sára.

Nordic Blue mótaði vegferð í samvinnu við stjórnendur Regenics í tengslum við hlutafjáraukninguna í ágúst. Félagið hefur náð góðum árangri í átt að markmiðum sínum síðan þá. Nýjasta hlutafjáraukningin mun styðja við áframhaldandi þróun á Collex®.

„Við sjáum áfram gríðarleg tækifæri í Regenics og vörum félagsins á sviði sárameðferðar. Rannsóknir á áhrifum Collex hafa sýnt lofandi niðurstöður og við erum stolt af því að styðja áfram við þróun hennar. Með sterkan vísindalegan grunn teljum við Regenics vera í góðri stöðu til að ná árangri á markaði fyrir sárameðferð. Fjárfestingin endurspeglar traust okkar á Regenics-teyminu og á þeirri framtíðarsýn að skapa verðmæti í gegnum nýsköpun í sjávarlíftækni,“ segir Brynjólfur Gísli Eyjólfsson, sjóðstjóri hjá IS Haf fjárfestingum slhf og stjórnarformaður Nordic Blue hf.

„Regenics er lánsamt að hafa bæði öflugan og áframhaldandi stuðning Nordic Blue og IS Haf fjárfestinga," sagði Jan A. Alfheim, stjórnarformaður Regenics. „Ég tel að Regenics sé í afar sterkri stöðu með þessari nýjustu fjármögnun. Nýja stjórnendateymið, undir forystu Jostein og Karin, sem vinna náið með stjórn Regenics, mun geta leitt Regenics hratt á næsta þróunarstig og fært Collex® nær inngöngu á markað.“