Jakobsson Capital, greiningarfyrirtæki Snorra Jakobssonar, hagnaðist um rúmlega 19 milljónir króna á árinu 2023 samanborið við 10 milljónir árið áður og 16,6 milljónir árið 2021.

Tekjur jukust um þriðjung á milli ára og námu 63 milljónum króna. Eigið fé í lok árs 2023 nam 20 milljónum króna en var 11 milljónir árið áður.

Jakobsson Capital býður m.a. upp á greiningarþjónustu í áskrift, sem felst m.a. í ársfjórðungslegu verðmati á helstu fyrirtækjum í Kauphöll, verðbólguspám og greiningum.

Jakobsson Capital

2023 2022
Rekstrartekjur 63 47
Eignir 31 19
Eigið fé 20 11
Hagnaður 19 10
Lykiltölur í milljónum króna.