Sjónvarpsauglýsing fyrir súkkulaðistykkið Twix hefur verið bönnuð í Bretlandi en ástæðan er sögð vera að auglýsingin hvetji fólk til að keyra hratt og glannalega. Á vef BBC segir að fimm kvartanir hafi borist gegn auglýsingunni.
Auglýsingin sýnir mann með sítt hár taka þátt í eltingaleik sem leiðir til bílveltu þar sem bíll hans lendir ofan á öðrum, alveg eins, karamellulituðum bíl. Báðir bílarnir verða svo klemmdir saman ofan á annan, rétt eins og Twix-stykki.
Mars-Wrigley, framleiðandi Twix, heldur því hins vegar fram að auglýsingin væri sett fram í kvikmyndalegu formi og gerðist í heimi sem væri augljóslega fjarri raunveruleikanum. Félagssamtökin Clearcast, sem samþykkja auglýsingar fyrir útsendingu, tóku undir þetta.
Breska auglýsingastofnunin, Advertising Standards Authority, úrskurðaði hins vegar að auglýsingin mætti ekki birtast aftur í núverandi mynd. ASA viðurkenndi að um tæknibrellur væri að ræða en gagnrýnir auglýsinguna fyrir umferðarlagabrot.
Mars segir að bílarnir hefðu ekið á löglegum hraða við upptökur auglýsingarinnar. Fyrirtækið, sem á einnig vörumerkin M&M og Maltesers, bætir við að Twix sé þekkt fyrir ýktan og skemmtilegan húmor og að auglýsingin endurspegli þann húmor.