Tyrk­neski seðla­bankinn kom mörkuðum veru­lega á ó­vart í gær er bankinn á­kvað að hækka stýri­vexti sína um 500 punkta og standa megin­vextir bankans því í 50%.

Sam­kvæmt Reu­ters var hækkunin mun meiri en spár greiningar­aðila gerðu ráð fyrir en að­eins 9 dagar eru í sveitar­stjórnar­kosningar í Tyrk­landi og áttu flestir von á hóf­legri vaxta­hækkun sökum þess.

Tyrkjum hefur þó illa tekist að ná tökum á verð­bólgunni en árs­verð­bólga í landinu mælist um 70%.

Piotr Matys, sér­fræðingur á gjald­eyris­mörkuðum hjá Touch Capi­tal í Lundúnum, segir í sam­tali við Reu­ters að hækkunin sýni skýra stefnu nýs seðla­banka­stjóra um að ná tökum á verð­bólgunni.

Fati­h Kara­han tók við sem seðla­banka­stjóri Tyrk­lands fyrr á árinu eftir að Hafize Gaye Erkan steig til hliðar eftir linnu­lausar á­rásir í fjöl­miðlum vegna starfa sinna.