Hluta­bréf Kviku banka hækkuðu um rúm 14 pró­sent á fjórum við­skipta­dögum vikunnar og var dagsloka­gengi bankans 17,58 krónum á hlut í dag.

Dagsloka­gengi bankans síðasta föstu­dag var 15,40 krónur en heildar­velta vikunnar nam alls 3.044 milljónum króna, dreift á sam­tals 298 við­skipti.

Upp­haf við­skipta­vikunnar ein­kenndist af ró­legri hækkun en eftir lokun markaða á mánu­daginn greindi stjórn Arion banka frá því að bankinn hefði áhuga á að sam­einast Kviku.

Degi síðar greindi stjórn Ís­lands­banka frá því að bankinn vildi einnig hefja sam­runa­viðræður við Kviku og lagði bankinn fram kaup­til­boð á allt að 10 pró­sentum yfir markaðsverði bankans.

Gengi hækkaði þann dag úr 15,90 í 17,55 krónur, sem nemur tæp­lega 10,4 pró­senta hækkun á einum degi. Veltan fór í tæp­lega 1,5 milljarða í 141 við­skiptum.

Hluta­bréfa­verð bankans hreyfðist lítil­lega í 426,9 milljóna króna við­skiptum í dag.

Hluta­bréfa­verð JBT Marels leiddi lækkanir á markaði í dag er gengi félagsins fór niður um 4,6% í ör­við­skiptum. Dagsloka­gengið var 14.500 krónur á hlut.

Hluta­bréf Símans lækkuðu um rúm 2% í 80 milljón króna við­skiptum. Dagsloka­gengið var 13,4 krónur á hlut.

Hampiðjan hækkaði um 7,5% í við­skiptum dagsins en félagið birti árs­hluta­upp­gjör eftir lokun markaða í gær. Dagsloka­gengið var 115 krónur eftir um 493 milljón króna við­skipti.

Úr­vals­vísi­talan lækkaði um 0,59% og var heildar­velta 4,1 milljarður.