Fjöldi nýskráðra fyrir­tækja í at­vinnu­rekstri árið 2024 var 3.376, þar af 2.913 einka­hluta­félög, sam­kvæmt Hag­stofu Ís­lands.

Flestar nýskráningar voru í byggingar­starf­semi og mann­virkja­gerð eða 537 sem þó er fækkun um 13% frá fyrra ári.

Í heild drógust nýskráningar fyrir­tækja í at­vinnu­rekstri saman um 4% miðað við árið 2023.

Á árinu voru 851 fyrir­tæki tekin til gjaldþrota­skipta sem er 30% fækkun frá fyrra ári þegar 1.220 fyrir­tæki urðu gjaldþrota.

Af 851 fyrir­tæki sem tekið var til gjaldþrota­skipta í fyrra voru 339 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrar­tekjur eða greiddu laun árið 2023.

Gjaldþrotum virkra fyrir­tækja fækkaði um 9% frá fyrra ári.

„Hjá þeim 339 virku fyrir­tækjum sem tekin voru til gjaldþrota­skipta árið 2024 störfuðu að jafnaði 1.973 starfs­menn árið 2023. Borið saman við fyrra ár var lítil breyting á heildar­fjölda launafólks sem gjaldþrotin höfðu áhrif á. Eftir at­vinnu­greinum störfuðu flestir í byggingar­starf­semi og mann­virkja­gerð, eða 733, og litlu færri í ein­kennandi greinum ferðaþjónustu eða 638,“ segir á vef Hag­stofunnar.