Nýtt bandarískt dvalar­leyfis­kerfi sem gengur undir heitinu „Trump Card“ hefur vakið mikinn áhuga meðal fjár­festa um allan heim. Um 68.703 um­sækj­endur höfðu skráð sig á biðlista aðeins örfáum dögum eftir að vefs­væðið trump­card.gov fór í loftið.

Kerfið er undir stjórn verslunarráðherra Bandaríkjanna, Howard Lutnick, og býður er­lendum fjár­festum lög­lega bú­setu í Bandaríkjunum gegn fjár­festingu upp á 5 milljónir Bandaríkja­dala eða 620 milljónir ís­lenskra króna.

„Kortið verður úr gulli. Það verður fal­legt,“ segir Lutnick í sam­tali við Financial Times og bætti við að for­seti Trump legði mikið upp úr út­liti og til­finningu slíks skjals.

Myndin af Donald Trump og undir­skrift hans prýða sjálft kortið, ásamt örninum bandaríska, þjóðfánanum og Frelsis­styttunni.

Kerfið virðist sækja inn­blástur í hefðbundna ímynd landsins og for­setans sem vöru­merki.

Sam­kvæmt Lutnick kom upp­hafs­hug­myndin frá fjár­festinum John Paul­son, nánum stuðnings­manni Trumps.

Til­gangurinn sé að safna tekjum í ríkis­sjóð og draga úr 36.000 milljarða dala skuld ríkisins. Ef 200.000 kort verða seld gæti ríkis­sjóður fengið allt að eina billjón dala í tekjur.

Kerfið er sér­stak­lega ætlað stjórn­endum fyrir­tækja og fólki úr at­vinnulífinu sem vill fá lög­lega bú­setu í Bandaríkjunum fyrir sig og sína.

Tals­maður stórs tækni­fyrir­tækis, sem óskaði nafn­leyndar, stað­festi í sam­tali við FT að fyrir­tækið hygðist kaupa yfir 100 slík kort, kæmi verk­efnið til fram­kvæmda. Sagði hann það hluta af því að „bjóða framúr­skarandi frum­kvöðla, verk­fræðinga og vísinda­menn vel­komna til Bandaríkjanna.“

Lutnick kynnti hug­myndina jafn­framt fyrir ráðamönnum í Sádi-Arabíu, Katar og Sam­einuðu arabísku fursta­dæmunum í fylgd Trumps í maí síðastliðnum.

„Ég get ekki annað en kynnt þetta fyrir alþjóð­legum stjórn­endum. Ég geri það alltaf,“ sagði hann.

Trump Card er talin hugsan­legur arf­taki EB-5 dvalar­leyfisins sem hefur verið í boði frá árinu 1990. EB-5 veitir varan­legt bú­setu­leyfi gegn fjár­festingu að lág­marki 800.000 til 1,8 milljóna dala.

Um 14.000 slík leyfi voru veitt í fyrra. Lutnick hefur lýst vilja til að fella EB-5 út og koma Trump Card í staðinn, jafn­vel innan nokkurra mánaða.

Enn sem komið er þurfa um­sækj­endur aðeins að skila inn nafni, net­fangi og heims­hluta. Mikilvæg at­riði eru þó enn ófrá­gengin, þar á meðal skatt­lagning hand­hafa og hvaða þjóðum gæti verið meinaður að­gangur að kerfinu.

Sam­kvæmt heimildum FT hafa bandarísk yfir­völd þegar úti­lokað ferðalög frá tals­verðum fjölda ríkja og fleiri eru til skoðunar.

Paolo Ardoino, for­stjóri Tet­her og sam­starfs­maður Lutnicks úr fyrra starfi hjá Cantor Fitz­gerald, hefur lýst efa­semdum um ávinninginn.

„Vanda­málið við að vera bandarískur ríkis­borgari eða með bandarískt leyfi er að maður þarf að greiða skatta í Bandaríkjunum, hvar sem maður býr,“ sagði hann í viðtali í apríl. „Ég bý í Sviss og El Salvador. Af hverju ætti ég að kaupa þetta?“

Þrátt fyrir að kerfið sé enn í mótun virðist áhuginn gríðar­legur. Á aðeins klukku­stund jókst skráningin um rúm­lega eitt þúsund manns. Óljóst er hver raun­veru­legur gangur málsins verður en ráð­gert er að út­gáfa fyrstu kortanna hefjist nú í sumar.