Hluta­bréfa­verð Icelandair hækkaði um rúm 3% í 80 milljón króna við­skiptum í dag. Dagsloka­gengi félagsins var 1,08 krónur og hefur hluta­bréfa­verð flug­félagsins því hækkað um 7% síðastliðna tvo við­skipta­daga.

Við­skipta­blaðið greindi frá því í morgun að ráðgjafar­fyrir­tækið Akkur meti loka­gengi hluta­bréfa Icelandair í lok ársins á 2,1 krónu á hlut.

Gengi félagsins hefur undan­farna mánuði verið rétt yfir út­boðs­gengi þess í septem­ber 2020, sem var 1,0. Hæst fór gengið árið 2022 í 2,2.

Heims­markaðsverð á olíu hefur einnig áhrif á gengi flug­félagsins en verðið á Brent hráolíu hefur lækkað um rúm 9% á síðustu fimm dögum.

Tunnan af Brent hráolíu, sem er notuð í flug­véla­elds­neyti, stendur í 65 dölum sem er lækkun frá 73 dölum í viku­byrjun.

Hluta­bréfa­verð Kviku banka lækkaði um rúmt 1% í 246 milljón króna við­skiptum og var dagsloka­gengi bankans 17,08 krónur á hlut.

Sam­kvæmt heimildum Við­skipta­blaðsins eru samtöl innan bankanna um mögu­legan sam­runa við Kviku enn í gangi þrátt fyrir að stjórn Kviku hafnaði sam­runa­viðræðum við Arion og Ís­lands­banka um miðjan mánuð.

Gengi Kaldalóns leiddi lækkanir á markaði í dag er gengi félagsins fór niður um tæp 2% í lítilli veltu.

Úr­vals­vísi­talan lækkaði um 0,39% og var heildar­velta á markaði 2,5 milljarðar.