Samtök atvinnulífsins (SA) verða með röð vinnu- og fræðslufunda um land allt á næstu dögum. Atvinnurekendum, bæjarbúum og stjórnsýslu hvers svæðis er boðið á fundina sem bera yfirskriftina Samtaka um land allt. Fundaröðin um landið er haldin í aðdraganda kjarasamninga en þeir renna flestir út í lok árs.

„Á fundunum er leitað að lausnum til að losa íslenskt efnahagslíf út úr vítahring verðbólgu og vaxta. SA segja það algjört forgangsatriði fyrir bæði fyrirtæki og heimili og bjóða öllum sem eiga heimangengt að þiggja kaffi og hádegisverð og eiga gott samtal,“ segir í fréttatilkynningu.

Á þriðjudaginn verða SA með fund fyrir höfuðborgarsvæðið á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 10:00-14:30.

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, segir fyrstu fundina hafa gengið vonum framar og fulltrúar samtaka launafólks hafi tekið virkan þátt. Hún bætir við að fundarefnið hafa valið sig sjálft því það sé stærsta áskorunin fyrir íslenskt samfélag.

„Við sjáum mikinn samhljóm um það. Það að verðbólga sé 8% og stýrivextir 9,25% er ólíðandi, hvort sem fólk rekur heimili eða fyrirtæki.“

Atvinnulíf og almenningur samtaka í könnun Gallup

SA kynnti nýverið niðurstöður könnunar sem Gallup gerði meðal félaga í SA og innan viðhorfahóps Gallup um komandi kjarasamninga. 91% aðildarfyrirtækjanna og 72% í viðhorfshópnum sögðu mesta forgangsmálið að ná samningum sem stuðli að lækkun vaxta og verðbólgu.

„Því er mikilvægt að fara í þessa hringferð til að ræða hvað aðilar vinnumarkaðarins, stjórnvöld, almenningur eða einstök fyrirtæki geti gert til að brjótast út úr þessum vítahringt. Við vitum að aðilar vinnumarkaðarins geta haft talsverð áhrif og við finnum til ábyrgðar,“ segir Sigríður Margrét.

„Það skiptir máli að við séum samtaka um markmiðin þótt okkur greini á um leiðirnar. Þá er mikilvægt að taka samtalið. Hreyfingar bæði launþega og atvinnurekenda geta haft mikil og jákvæð áhrif fyrir samfélagið. Til dæmis var lífeyrissjóðakerfinu komið á í gegnum kjarasamninga fyrir um 50 árum.“

Sigríður Margrét segir háa vexti vera farna að bíta en mörg fyrirtæki sækja útlánsvexti upp á 15%. Þá hafi arðsemi fyrirtækja verið 20% lægri á fyrri helmingi þessa árs samanborið við sama tíma í fyrra. Af öðrum verkefnum sem fyrir liggja nefnir hún húsnæðismálin.

„Við sjáum eðlilega mikla áherslu á húsnæðismálin, þann kostnað sem undirliggjandi framboðsvandi skapar fyrir bæði heimilin beint en líka í formi verðbólgu.“