Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur hafið undirbúning að sameiningu átta héraðsdómstóla í einn héraðsdómstól. Starfshópur leggur til að sameining héraðsdómstólanna taki gildi 1. ágúst 2024 en dómstjóri verði skipaður frá 1. mars 2024 til þess meðal annars að undirbúa sameininguna og starfsemi Héraðsdóms.
Að mati Jóns er forsenda sameiningarinnar að héraðsdómstóllinn hafi áfram starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem núverandi dómstólar eru staðsettir.
„Með einum héraðsdómstól megi ná fram einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu og bættu eftirliti. Fjárframlög og mannauður dómstólanna muni nýtast betur og aukið hagræði nást við meðferð dómsmála borgurunum til hagsbóta,“ segir í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins.
Yfirstjórn í Reykjavík og átta starfsstöðvar
Dómsmálaráðherra skipaði starfshóp um sameiningu héraðsdómstólanna í mars 2022 sem hefur nú skilað ráðherra skýrslu. Megintillögur hópsins eru þær að héraðsdómstólarnir verði sameinaðir í einn Héraðsdóm með yfirstjórn í Reykjavík og átta starfsstöðvar á þeim stöðum sem héraðsdómstólarnir eru nú starfræktir.
Þá verði störfum á starfsstöðvum á landsbyggðinni og munu að lágmarki þrír starfa á hverri starfsstöð, þar af að minnsta kosti tveir héraðsdómarar eða einn héraðsdómari og einn dómarafulltrúi.
Lagt er til að dómstjóri og varadómstjóri Héraðsdóms verði skipaðir til fimm ára úr hópi héraðsdómara af stjórn dómstólasýslunnar. Það verði gert að undangengnu hæfnismati í stað kosningar á meðal dómara.
Starfshópurinn setur m.a. fram eftirfarandi röksemdir fyrir breytingunum:
- Stjórnsýsla á fyrsta dómstigi verður einfaldari og öflugri.
- Með heimildum til að flytja dómsmál á milli starfsstöðva verði tryggð næg verkefni fyrir alla starfsmenn og góð nýting mannauðs.
- Tryggt verður að þjónusta héraðsdómstólanna utan höfuðborgarsvæðisins skerðist ekki.
- Með útfærslunni er búið í haginn fyrir stafræna umbreytingu í dómskerfinu þar sem tekið er við öllum dómsmálum í einni sameiginlegri gátt.