Disney hefur tilkynnt að til standi að segja upp nokkrum hundruðum starfsmanna til viðbótar um allan heim. Á vef BBC segir að starfsmenn í kvikmynda-, sjónvarps- og fjármáladeildum verði sérstaklega fyrir áhrifum.

Fyrirtækið hefur undanfarin misseri glímt við breytingar meðal áhorfenda sem hafa verið að hætta að notast við sjónvarpsáskriftir og fært sig yfir í streymisveitur.

Uppsagnir hjá Disney eru ekki nýjar af nálinni en árið 2023 var sjö þúsund starfsmönnum sagt upp vegna 5,5 milljarða dala sparnaðaráætlunar Bobs Igers, forstjóra Disney. Rúmlega 233 þúsund manns starfa hjá Disney, sem á meðal annars Marvel, Hulu og ESPN.

Nýjasti niðurskurðurinn mun einnig koma til með að hafa áhrif á markaðsteymi hjá kvikmynda- og sjónvarpsdeildum Disney. Starfsmenn í leikara- og þróunardeildum fyrirtækisins verða einnig fyrir áhrifum.

Disney greindi engu að síður frá meiri hagnaði en búist var við í maí. Heildartekjur fyrirtækisins námu 23,6 milljörðum dala á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, eða 7% meiri en á sama tíma í fyrra.