Jeff Bezos, einn ríkasti maður í heimi, keyrði einu sinni um á Hondu Accord frá 1997 og endurnýtti gamlar tréhurðir sem skrifborð. Í dag er hann hins vegar metinn á 263,8 milljarða dala samkvæmt fréttaflutningi WSJ.
Auður hans hefur gert honum kleift að eyða meiri tíma í gæluverkefni eins og eldflaugasmíði fyrir geimfyrirtækið Blue Origin.
Bezos, sem á 8,6% hlut í 190 milljarða dala fyrirtækinu Amazon, hefur einnig vakið mikla athygli vegna komandi brúðkaups hans við Laruen Sanchez í Feneyjum sem áætlað er að muni kosta 15-20 milljónir dala.
Árið 2024 seldi Bezos hlutabréf í Amazon fyrir 13,5 milljarða en það er einkafjárfestingafyrirtæki hans, Bezos Expeditions, sem sér um auð hans og fjárfestingar. Að mati Sovereign Wealth Fund Institute er fyrirtækið metið á 107,8 milljarða dala.

Á vefsíðu fyrirtækisins segir að Bezos sé búinn að fjárfesta í fyrirtækjum á borð við Airbnb, Uber Technologies, Perplexity og Washington Post ásamt geimfyrirtæki milljarðamæringsins, Blue Origin.
Bezos er einnig 23. stærsti landeigandi Bandaríkjanna en hann á 420 þúsund ekrur víðs vegar um Bandaríkin. Hann keypti 165 milljóna dala hús í Beverly Hills árið 2020 og ári seinna keypti hann 78 milljóna dala 14 ekru lóð á Maui.
Hann á einnig þrjár íbúðir 212 Fifth Avenue á Manhattan, sem Bezos keypti árið 2019, og kostuðu samtals 80 milljónir dala. Þar að auki á hann þrjár eignir á einkaeyju skammt frá Miami sem kostuðu 234 milljónir dala.
Hann þarf þó ekki að ferðast á milli þessara eigna með rútu en hann á heilt safn einkaþota ásamt 127 metra langri 500 milljóna dala snekkju sem ber heitið Koru. Viðbótarskip snekkjunnar, Abeona, kostaði 75 milljónir dala og er meira að segja búin þyrlupalli.