Vöruútflutningur frá Íslandi til Bandaríkjanna nam 5,8 milljörðum króna í maí síðastliðnum, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í morgun. Útflutningur til Bandaríkjanna samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur ekki verið minni síðan í apríl 2023.
Útflutningsverðmætin féllu um 22% milli mánaða og um 40% frá maímánuði 2024. FF7 greindu fyrst frá samdrætti í útflutningi frá Bandaríkjunum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í byrjun apríl um innleiðingu 10% lágmarkstolls á allar innfluttar vörur til Bandaríkjanna, þar á meðal íslenskar vörur. Tollarnir tóku gildi 5. apríl síðastliðinn.
Vöruskiptajöfnuður Íslands var neikvæður um 63,1 milljarð króna í maí sl., samkvæmt endurskoðuðum tölum Hagstofunnar. Fluttar voru út vörur fyrir 79,8 milljarða króna fob og inn fyrir 142,9 milljarða króna cif.
Vöruskiptajöfnuður við Bandaríkin í maí var neikvæður um 12,3 milljarða króna og hefur vöruskiptahallinn við Bandaríkin ekki verið meiri í einum mánuði síðan í júní 2009.
Útflutningur á sjávarafurðum til Bandaríkjanna dróst saman um ríflega þrjátíu prósent milli mánaða.
Það skýrist einkum af því að innflutningur frá Bandaríkjunum nam 18,2 milljörðum króna í maí, samanborið við 4,4 milljarða í apríl, og hefur aldrei verið meiri frá upphafi mælinga. Gera má ráð fyrir að það tengist fjárfestingu gagnavera en innflutningur fjárfestingarvara nam 14,2 milljörðum í maí, samanborið við 122 milljónir í apríl.
FF7 bendir á að lyfjasala Alvotech til Bandaríkjanna komi ekki fram í tölum Hagstofunnar sem útflutningur til Bandaríkjanna. Það skýrist af því að líftæknilyfjafyrirtækið flytur lyfin fyrst út til Bretlands, Þýskalands og Sviss og þaðan til Bandaríkjanna.