Hluta­bréfa­verð Síldar­vinnslunnar leiddi lækkanir á aðal­markaði í dag er gengi félagsins fór niður um tæp 5% í við­skiptum dagsins. Dagsloka­gengi Síldar­vinnslunnar var 94,75 krónur sem er þó rúmu pró­sentu­stigi hærra en í árs­byrjun.

Á sama tíma lækkaði gengi Ís­félagsins um rúm 4% en bæði félög hafa hækkað á síðustu vikum á meðan loðnumælingar haf­rannsóknar­stofnunar hafa staðið yfir.

Haf­rannsóknar­stofnun greindi hins vegar frá því eftir lokun markaða á föstu­daginn að bráða­birgðaniður­stöður loðnumælinga gæfu til að kynna að ráðgjöf um að engar veiðar veturinn 2024/2025 verði ekki breytt.

Niður­stöður ber­málsmælinganna sýna að heildar­magn full­orðinnar loðnu sem myndar veiði­stofn vertíðarinnar er aðeins um tveir þriðju þess sem mældist í septem­ber 2024.

Rannsókna­skip Haf­rannsókna­stofnunar, Árni Friðriks­son, ásamt þremur upp­sjávar­veiði­skipum, Heima­ey, Polar Ammassak og Barða, hafa verið við loðnumælingar síðan 16. janúar.


Hluta­bréfa­verð Brims lækkaði einnig í við­skiptum dagsins er gengi félagsins fór niður um 2,5%. Gengi Hampiðjunnar lækkaði síðan um 4% í við­skiptum dagsins.

Gengi JBT Marel leiddi hækkanir á aðal­markaði er gengi félagsins fór upp um rúm 5% í 236 milljón króna við­skiptum. Dagslokagengi JBT Marel var 18.500 krónur.

Úr­vals­vísi­talan lækkaði um 0,04%. Heildar­velta á markaði 4,2 milljarðar.