Úrvalsvísitalan stóð nánast í stað í 2,6 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Níu félög aðalmarkaðarins hækkuðu og þrettán lækkuðu í viðskiptum dagsins.

Hagar, sem birtu uppgjör eftir lokun Kauphallarinnar í dag, hækkuðu mest af félögum Kauphallarinnar eða um 2,8% í yfir 300 milljóna veltu. Gengi Haga stendur nú í 102 krónum á hlut eftir samtals 4,6% hækkun í vikunni.

Mesta veltan var með hlutabréf Alvotech, eða um 460 milljónir króna, en gengi félagsins hækkaði um 0,9%. Gengi Alvotech, sem tilkynnti í morgun um bætt kjör á langtímaskuldum félagsins, stendur nú í 1.135 krónum á hlut.

Hlutabréf fjögurra félaga lækkaði um meira en eitt prósent í dag, þar á meðal útgerðarfélögin þrjú á aðalmarkaðnum; Brim, Ísfélagið og Síldarvinnslan. Auk þess lækkaði hlutabréfaverð Iceland Seafood um 2,4%.

Tilkynnt var í dag um sölu Gunnars Sigvaldasonar, stjórnarmanns og eins stærsta hluthafa Ísfélagsins, á hlutabréfum í félaginu að andvirði 49 milljónir króna. Gunnar er þó áfram þriðji stærsti einstaki hluthafi Ísfélagsins með 6,3 milljarða hlut.