Rachel Reeves, fjármálaráðherra Bretlands, útilokar ekki frekari skattahækkanir eftir birtingu nýrra talna frá apríl sem sýna fram á versta samdrátt í breska hagkerfinu í eitt og hálft ár.

Á vef BBC segir að hagkerfið hafi dregist saman um 0,3% samhliða skattahækkunum á fyrirtæki, hækkandi útgjöldum og samdrætti í útflutningi til Bandaríkjanna.

Fjármálaráðherrann tilkynnti í gær fjárlagafrumvarp stjórnvalda sem miðar að því að efla hagvöxt með aukinni fjárveitingu til NHS og varnarmála. Stjórnvöld munu hins vegar skera niður fjárveitingar til annarra geira.

Hagfræðingar höfðu varað við því að ef stjórnvöld næðu ekki að auka hagvöxt í Bretlandi myndi það líklegast leiða til frekari skattahækkana síðar á árinu til að koma til móts við skuldbindingar ríkisstjórnarinnar.

Ruth Curtice, framkvæmdastjóri Resolution Foundation, segir að veikari efnahagshorfur og engar verðbreytingar á eldsneyti yfir veturinn þýði að fjármálaráðherrann þurfi líklega að skoða skattahækkanir á ný í haust.