Viðskipti með bréf Valterra Platinum hófust í morgun á aðalmarkaði í London eftir að fyrirtækið var selt frá móðurfélagi sínu, Anglo American, en virði þess er metið á rúmlega tíu milljarða dala.
Valterra er stærsta platínumálmanámufyrirtæki heims og á vef WSJ segir að félagið muni viðhalda skráningu sinni á hlutabréfamarkaði í Jóhannesarborg í Suður-Afríku.
Framleiðslugeta fyrirtækisins fyrir árið 2025 er áætluð um að vera um 85 þúsund kíló og mun hver og verður virði hverrar únsu af platínu rúmlega 970 til 1.000 dalir.
Aðskilnaður Valterra Platinum frá Anglo American hófst á síðasta ári eftir misheppnaða yfirtökutilraun af hálfu ástralska námufyrirtækisins BHP sem hafði boðið 39 milljarða dala fyrir Anglo American.