Sænski rafhlöðuframleiðandinn Northvolt, sem stefndi á að verða stærsti rafhlöðuframleiðandi fyrir rafbíla í Evrópu, hefur lent í töluverðum vandræðum á síðustu dögum.
Í síðustu viku greindi sænska viðskiptablaðið Dagens Industri frá því að fyrirtækið hefði hætt við áætlanir sínar um að byggja aðra milljarða dala verksmiðju í Svíþjóð samhliða því að þýska tímaritið Manager Magazin greindi frá því að BMW hefði hætt við pantanir fyrir tvo milljarða evra vegna framleiðsluvandræða hjá fyrirtækinu.
Northvolt greindi síðan frá því að félagið væri að hætta við fyrirhugað frumútboð og skráningu á markað.
Í byrjun febrúar 2022 greindi Northvolt frá áætlunum sínum að byggja framleiðslustöð í Borlänge norðan við Stokkhólm, verksmiðjan yrði tilbúin fyrir árslok 2024 og það myndu starfa um 1000 manns þar.

Bæjarstjórinn í Borlänge segir í samtali við Dagens Industri að allar framkvæmdir í tengslum við framleiðslustöðina hafi verið stöðvaðar.
Sænskir og danskir lífeyrissjóðir hafa lagt rafhlöðuframleiðandanum töluvert fé á síðustu árum. Samkvæmt Børsen hefur danski lífeyrissjóðurinn ATP fjárfest í félaginu fyrir 2,1 milljarð danskra króna eða um 42 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins.
Til samanburðar átti lífeyrissjóðurinn hluti í Novo Nordisk fyrir um 1,5 milljarða danskra króna í árslok 2023.
Samkvæmt Børsen hafa lífeyrissjóðirnir enn trú á Northvolt. Sænski lífeyrissjóðurinn AMF, sem á um 3% hlut í Norhvolt, er þó byrjaður að þrýsta á félagið til að draga úr vexti og byrja að einblína á að halda sér á floti.
„Englafjárfestingum fylgir alltaf einhver áhætta,“ segir Sabine Calmer Baad, fjárfestingastjóri ATP, í samtali við Børsen.
„Northvolt er fyrirtæki sem hefur gríðarlega mikla möguleika á að sækja fram nú þegar breytingar eru að verða í samgönguiðnaðinum og hlutfall rafbíla er að aukast. Frá árinu 2017 hefur fyrirtækið í nánu samstarfi við viðskiptavini framleitt rafhlöður sem mæta þeirra þörfum,“ bætir hún við.
Endurfjármögnuðu lán í byrjun árs
Í janúar á þessu ári tók Northvolt fimm milljarða dala lán til að endurfjármagna skuldir og hefja framkvæmdir á framleiðslustöðvum í Þýskalandi og Kanada.
Framkvæmdir á verksmiðjunni í Heide í Þýskalandi hófust í mars en náttúruverndarsamtök í Kanada stefndu fyrirtækinu til að stöðva framkvæmdir á verksmiðjunni rétt fyrir utan Monreal.
Samkvæmt Børsen lagði danski lífeyrissjóðurinn Danica fyrirtækinu auka fé til að ráðast í þessar framkvæmdir en fjárfestingastjóri Danica segir í samtali við Børsen að Danica hafi fjárfest um milljarð danskra króna í verskmiðjunum tveimur.
Thomas Ingerslev fjárfestingastjóri Danica vildi ekki tjá sig um vandræði Northvolt en staðfesti að lífeyrissjóðurinn hefði keypt breytanleg bréf af Northvolt til að fjármagna verksmiðjurnar.
Samkvæmt Dagens Industri hafa framleiðsluvandræði Northvolt valdið því að félagið skilaði tapi upp á fimm milljarða sænskra króna á þriðja ársfjórðungi 2023.
Fyrirtækið hefur ekki enn skilað ársuppgjöri fyrir árið í fyrra. Aðrir stórir fjárfestar í Northvolt eru Volkswagen, Volvo og Goldman Sachs.