Bandarísku fjár­festinga­sjóðirnir, Vangu­ard og Eaton Vance, bættu tölu­vert við hluta­bréfa­eign sína í Ís­lands­banka í maí sam­kvæmt ný­birtum gögnum frá Verðbréfa­skrá Nas­daq.

Vangu­ard jók hlut sinn úr 2,4 % í 4,2 % milli apríl og maí og bætti þannig við sig 33.519.401 hlutum á einum mánuði.

Þetta gerir Vangu­ard að fimmta stærsta hlut­hafa Ís­lands­banka með sam­tals 78.989.177 hluti í bankanum í lok maí.

Á sama tíma bætti Eaton Vance við sig 2.936.000 hlutum í maí og fór eignar­hlutur fjár­festingafélagsins í Ís­lands­banka upp í 0,9%.

Eaton Vance er nú fimmtándi stærsti hlut­hafi Ís­lands­banka með um 17.127.297 hluti í bankanum.

Tölu­verð við­skipti voru með bréf Ís­lands­banka í maímánuði en líkt og kunnugt er seldi ríkið eignar­hlut sinn í bankanum í mánuðinum.

Tug­milljarða velta hefur verið með bréf bankans á eftir­markaði enda var markaðs­gengið tölu­vert yfir út­boðs­gengi.