Fyrir­tæki í gisti­rekstri og veitingaþjónustu skera sig úr með hæsta van­skila­hlut­fallið á lánum hjá fjár­mála­fyrir­tækjum, sam­kvæmt nýrri skýrslu Seðla­banka Ís­lands um fjár­málastöðug­leika.

Í lok mars mældust van­skil fyrir­tækja í þessum greinum 6,8%, sem er hæsta hlut­fallið meðal at­vinnu­greina þrátt fyrir að hafa lækkað um tæpt 1 pró­sentu­stig frá áramótum.

Til saman­burðar mældust van­skil fyrir­tækja í bygginga­starf­semi 4% og voru lítil­lega breytt frá fyrri mælingum. Heildar­van­skil fyrir­tækjalána voru 2,6% og hjá ein­stak­lingum 1%.

Skulda­vöxtur heimila jókst lítil­lega, eða um 1% að raun­virði, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Nafn­vöxtur mældist 4,8%. Helsti drif­krafturinn var eftir­spurn eftir íbúðalánum, einkum hjá líf­eyris­sjóðum, þar sem betri vaxta­kjör bjóðast og útlána­reglur hafa ekki verið hertar líkt og hjá bönkunum.

Eftir­spurn eftir nýjum lánum til heimila hefur þó dregist saman á síðustu mánuðum og hraði upp­greiðslna á óverð­tryggðum lánum hefur minnkað – lík­lega vegna lækkandi vaxta á óverð­tryggðum íbúðalánum. Um 40% nýrra íbúðalána það sem af er ári hafa verið óverð­tryggð.

Raun­vöxtur skulda fyrir­tækja við inn­lend fjár­mála­fyrir­tæki var 6% í lok mars, saman­borið við 9,9% nafn­vöxt. Lán­veitingum til fyrir­tækja hefur fækkað í flestum greinum, nema í bygginga­starf­semi og þjónustu. Þá hefur dregið veru­lega úr nýjum útlánum í er­lendum gjald­miðlum frá síðasta ári.

Fyrir­tæki hafa í auknum mæli tekið óverð­tryggð lán, meðal annars vegna þess að bankarnir hafa dregið úr notkun verð­tryggðra lána sökum verð­tryggingar­mis­vægis í eigin bókum.

Þrátt fyrir hækkandi vexti og tak­markanir á lána­skil­yrðum er al­mennt lítið um van­skil hjá bæði heimilum og fyrir­tækjum, í sögu­legu og alþjóð­legu sam­hengi.

Seðla­bankinn bendir þó á mikilvægi þess að fylgjast með ákveðnum greinum nánar, sér­stak­lega í ferðaþjónustu og byggingar­geiranum, þar sem van­skila­hlut­föll eru hærri en annars staðar.