Flugslys Air India í dag hefur reynst þungt högg fyrir Boeing en hin umrædda Boeing 787-flugvél, sem hrapaði við flugtak í morgun á leið til London Gatwick, var ein söluhæsta flugvél hjá bandaríska flugvélaframleiðandanum.
Á síðu WSJ segir að hlutabréf Boeing hafi lækkað um 5% í dag en félagið hefur glímt við fjölda öryggiserfiðleika og slysauppákoma undanfarin ár.
Flugvélin var með 242 farþega um borð þegar hún tók á loft en rúmlega mínútu eftir flugtak, þegar vélin var komin í 625 feta hæð, slitnaði staðsetningarbúnaður flugvélarinnar og hún féll af himni.
Það er enn ekki vitað hvað nákvæmlega olli slysinu en Boeing segist vera í stöðugu sambandi við Air India og að hugur félagsins sé hjá öllum þeim sem létust og urðu fyrir áhrifum.
Samkvæmt gögnum frá Flightradar24 var hin umrædda flugvél fyrst tekin í notkun árið 2014. Boeing 787, sem var sett á markað árið 2011, var engu að síður talin vera ein öruggasta flugvél í heimi og hafði aldrei áður lent í slysi sem olli dauðsföllum.