Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði saman nokkra forstjóra af helstu bílafyrirtækjum Bandaríkjanna fyrr í þessum mánuði í símaviðtal þar sem hann varaði þá við að hækka verð á bílum vegna tolla.
Forsetinn sagði að ríkisstjórnin myndi líta illum augum á slíkar verðhækkanir og samkvæmt WSJ hafa nokkrir þeirra áhyggjur af mögulegum refsiaðgerðum frá forsetanum.
Trump sagði að forstjórarnir ættu að vera þakklátir fyrir að hann hafi afturkallað reglugerðir Joe Biden um rafbílaframleiðslu, sem fólu meðal annars í sér styrki og losunarkröfur. Hann sagði svo að tollarnir væru frábærir og að framleiðendur myndu njóta góðs af þeim.
Nýjustu tollar Trump á innflutta bíla og varahluti er 25% og taka gildi 2. apríl nk. Þar sem flestir bandarískir bílaframleiðendur reiða sig á hráefni og íhluti frá öðrum löndum er nánast óhjákvæmilegt að þeir muni hækka verð sín.