Vogunarsjóðurinn Elliott Management hefur varað við því að stuðningur Bandaríkjastjórnar við rafmyntir sé að ýta undir bólmyndun sem geti valdið miklu efnahagshruni þegar hún springur.
Í bréfi til fjárfesta, sem Financial Times hefur undir höndum, lýsir sjóðurinn yfir miklum áhyggjum af mörkuðum um þessar mundir.
Elliott, sem stýrir eignum upp á 70 milljarða Bandaríkjadala, gagnrýnir sérstaklega Hvíta húsið fyrir að styðja eignaflokka sem hafa hækkað gríðarlega í verði þrátt fyrir að „engar raunverulegar undirstöður“ séu fyrir þeim.
Sjóðurinn telur að rafmyntir hafi orðið miðpunktur þessarar spákaupmennskubólu og bendir á náin tengsl markaðarins við Bandaríkjastjórn.
„Við höfum aldrei séð markað eins og þennan,“ skrifar Elliott í bréfinu og bendir á að rafmyntir, gervigreindarbólan og hátt verðmat hlutabréfamarkaða séu hluti af fjármálalegu æði þar sem fjárfestar hegði sér eins og „hópur veðmála-fíkla“.
Áhyggjur af veikingu Bandaríkjadals
Elliott gagnrýnir einnig stjórnvöld fyrir að styðja rafmyntir á sama tíma og önnur ríki leitast við að minnka notkun Bandaríkjadals sem alþjóðlegs varagjaldmiðils. Í bréfinu kemur fram að sjóðurinn telji það „afar hættulegt“ fyrir stjórnmálamenn að styðja þróun sem geti veikt stöðu Bandaríkjadals á alþjóðavettvangi.
Bréfið nefnir sérstaklega að verulegir fjármunir hafi verið lagðir í stuðning við stjórnmálamenn sem eru jákvæðir gagnvart rafmyntum. Þar á meðal eru samtökin Fairshake, sem hafa varið 173 milljónum dala í kosningabaráttu frambjóðenda sem styðja rafmyntir á árunum 2023 og 2024.
Trump eykur tengsl sín við rafmyntamarkaðinn
Elliott varar sérstaklega við stefnu Donalds Trump, sem hefur lýst því yfir að hann vilji gera Bandaríkin að „rafmyntastórveldi“. Eftir sigur hans í forsetakosningunum hefur Bitcoin hækkað úr 70.000 dölum í yfir 100.000 dali og hefur forsetinn undirritað tilskipun um að stuðla að „forystu Bandaríkjanna í fjármálatækni“.
Trump-fjölskyldan hefur einnig aukið bein tengsl sín við rafmyntamarkaðinn. Ásamt sonum sínum og viðskiptafélögum hefur Trump stutt við stofnun rafmyntapallsins World Liberty Financial og nýlega kynntu hann og eiginkona hans, Melania Trump, eigin „memecoin“-gjaldmiðil.
Trump Media, fyrirtæki í meirihlutaeigu forsetans, tilkynnti jafnframt á miðvikudag að það hyggðist stækka starfsemi sína með því að fjárfesta allt að 250 milljónum dala í rafmyntum og aðrar eignir.
Ófyrirsjáanleg áhrif hruns
Elliott varar við því að „óhjákvæmilegt hrun“ rafmyntamarkaðarins muni hafa ófyrirsjáanleg áhrif á fjármálakerfið og geti valdið „eyðileggingu sem við getum ekki enn séð fyrir“.
Sjóðurinn, sem stofnaður var af Paul Singer árið 1977, hefur í gegnum tíðina verið þekktur fyrir harða gagnrýni á óstöðugar fjárfestingar og hefur tekist á við fyrirtæki og ríkisstjórnir í áralöngum lagalegum deilum.
Þrátt fyrir að Singer hafi lengi verið gagnrýnandi rafmynta- og efnahagsstefnu Trump styrkti hann kosningabaráttu repúblikana um 56 milljónir dala árið 2024, þar á meðal 5 milljóna dala framlag til „Make America Great Again“-samtakanna.
Samkvæmt FT sendir Elliot með þessari harðorðu gagnrýni skýr skilaboð til fjárfesta og stjórnvalda um hættuna sem fylgir óhóflegu fjárstreymi í rafmyntamarkaðinn og spákaupmennsku almennt.
Hvort stjórnvöld taki viðvöruninni alvarlega á eftir að koma í ljós.