Kazuo Ueda, seðlabankastjóri Japans, var afar varfærinn í framsýnni leiðsögn sinni samhliða vaxtaákvörðun bankans í nótt og veikti jenið í kjölfarið.
„Á meðan óvissa ríkir um framtíðarhorfur viljum við gefa okkur meiri tíma á meðan hlutirnir róast,“ sagði Ueda á blaðamannafundi í Japan en The Wall Street Journal greinir frá.
Japanski seðlabankinn ákvað að halda vöxtum óbreyttum í 0,25%.
Í beinu framhaldi af ummælum Ueda veiktist jenið gagnvart Bandaríkjadal. Einn Bandaríkjadalur fór upp í 143,9 jen en stóð í 141,7 jenum fyrir blaðamannafundinn. Ávöxtunarkrafa á tíu ára ríkisskuldabréfum féll um 2 punkta í 0,803%.

Japanski seðlabankinn hækkaði vexti í 0,25% í lok júlí sem olli skammtímauppþoti á mörkuðum. Nikkei-vísitalan féll um 12% í kjölfarið en náði sér þó á strik strax daginn eftir með 10,2% hækkun.
Ueda hefur sagt að japanski seðlabankinn sé óhræddur við að hækka vexti sé þess þörf. Mikið flökt hefur verið á gengi jensins á móti dal á síðustu vikum vegna yfirvofandi vaxtalækkana vestanhafs.
Á blaðamannafundinum í dag sagði Ueda að bankinn sé að íhuga aðra vaxtahækkun en áður en til þess kæmi verður skoðað hvaða áhrif launahækkanir og aukin neysla séu að hafa á verðþróun.