Ríkisstjórn Donalds Trumps hefur veitt bandaríska fyrirtækinu Green Corridors leyfi til að byggja 265 km upphækkaðan veg fyrir sjálfkeyrandi skutlur sem myndi flytja varning á milli Laredo í Texas og Monterrey í Mexíkó.
Á vef WSJ segir að tíu milljarða dala verkefnið feli meðal annars í sér byggingu fjögurra landamærastöðva, eða tveggja í sitt hvorri borginni, sem verða tengdar saman.
Ferlið virkar þannig að vörbílstjórar mæta á stöðvarnar og aftengja síðan 16 metra vagna sína sem verða að lokum komnir fyrir á hreyfanlega kassa sem ferðast fram og til baka eins og lest.
Trump gaf Green Corridors leyfi til að hefja framkvæmdir þann 9. júní sl. og rennur leyfið út eftir fimm ár ef framkvæmdir verða ekki byrjaðar fyrir það.
Mitch Carlsson, framkvæmdastjóri Green Corridors, segist enn vera að bíða eftir leyfi frá mexíkóskum stjórnvöldum en hann vonast til að geta lokið framkvæmdum og prufunum árið 2031.