Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur náð samkomulagi við helstu lánveitendur sína um að lækka vexti á langtímaskuldum félagsins, sem leiðir til rúmlega milljarðs króna sparnaðar í vaxtakostnaði á næstu tólf mánuðum.
Samkomulagið felur í sér að bandaríska eignastýringarfyrirtækið GoldenTree Asset Management, ásamt hópi alþjóðlegra stofnanafjárfesta, samþykkir að fella saman tvær áður aðskildar lánalínur félagsins í eitt lán með hagstæðari vaxtakjörum.
Nýja lánið mun bera 6,0% álag á SOFR-millibankavexti í stað 6,5% og 10,5% álags.
Upprunalega var um að ræða lán í tveimur hlutum. Annar þeirra, að fjárhæð 900 milljóna bandaríkjadala, bar 6,5% álag á SOFR-millibankavexti og hinn hlutinn, að fjárhæð 65 milljóna bandaríkjadala, bar 10,5% álag á SOFR.
Lánveitendurnir hafa nú ákveðið að fella hlutana saman í eitt lán sem mun bera 6,0% álag á SOFR. Lánið nemur nú um 1.081 milljón bandaríkjadala en félagið átti 152 milljónir Bandaríkjadala í lausafé 25. júní síðastliðinn. .
Joel Morales, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech, segir vaxtalækkunina vera staðfestingu á vaxandi trausti fjárfesta á félaginu og árangri þess í lyfjaþróun.
„Við gerum ráð fyrir að rekstur Alvotech skili jákvæðu sjóðstreymi á árinu 2025 og því er ekki þörf til að fjármagna rekstur félagsins frekar. Vaxtalækkunin sýnir traust þessara reyndu stofnanafjárfesta, sem hafa mikla þekkingu á lyfjaiðnaðinum, á árangri okkar í lyfjaþróun og framtíðaráætlunum félagsins,“ segir Joel Morales, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech.