Rúmlega 70% þátttakenda í markaðskönnun Viðskiptablaðsins telja að peningastefnunefnd Seðlabankans muni taka ákvörðun um að lækka vexti um 50 punkta á vaxtaákvörðunarfundi bankans þann 5. febrúar í næstu viku.
18% svarenda telja að lækkunin muni nema 25 punktum. Þá sjá 8% þeirra fram á 75 punkta lækkun. Tveir þátttakenda spá 100 punkta lækkun og þá spáir einn þátttakenda því að vextir haldist óbreyttir.
Könnunin var send á 276 markaðs- og greiningaraðila á miðvikudaginn í síðustu viku og barst 101 svar sem jafngildir 37% svarhlutfalli.
Tæplega þrír af hverjum fjórum þátttakendum könnunarinnar telja aðhald peningastefnunnar vera of mikið.
Þannig telja 41% svarenda aðhaldsstigið „aðeins of mikið“, tæplega fjórðungur telur það „of mikið“ og 9% svarenda „allt of mikið“. Fjórðungur telur aðhaldsstigið hæfilegt og einn þátttakandi könnunarinnar telur það „aðeins of lítið“.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu, sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.