Frá og með deginum í dag verður hægt að sækja vegabréf og nafnskírteini í verslun Hagkaups í Skeifunni. Í tilkynningu segir að hægt verði að sækja skírteinin allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.

Fyrsta skilríkið var afhent klukkan 10:00 í dag, 21. október, og voru bæði fulltrúar frá Hagkaup og Þjóðskrá á staðnum.

„Það er mikil þjónustubæting fyrir viðskiptavini Þjóðskrár að geta nálgast skilríki miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Við verslun Hagkaups í Skeifunni eru næg bílastæði sem ekki þarf að greiða fyrir, mun betra aðgengi er fyrir viðskiptavini, sérstaklega fyrir fatlaða, og opið er allan sólarhringinn,“ segir jafnframt í tilkynningu.

Starfsfólk Hagkaups hefur þegar fengið viðeigandi þjálfun og sömu öryggistöðlum verður fylgt eftir sem áður.

„Við höfum lengi leitað lausna við að bjóða okkar viðskiptavinum upp á betri þjónustu við afhendingu skilríkja. Þá kom nafn Hagkaups upp í hugann og við ákváðum að leita til þeirra með þessa hugmynd sem samræmist leiðarljósi Þjóðskrár,“ segir Júlía Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Þjóðskrá.

Afhending skilríkja í Hagkaup er tilraunaverkefni til sex mánaða og segir að vel verði fylgst með öllum þáttum verkefnisins.

„Við vorum himinlifandi að fá þessa fyrirspurn frá Þjóðskrá því við sem þjónustufyrirtæki erum stöðugt að leita nýrra leiða til að mæta betur þörfum viðskiptavina okkar. Það verður án efa mikil breyting fyrir viðskiptavini Þjóðskrár að geta komið þegar þeim hentar til að sækja skilríki sín og við hlökkum til að taka á móti þeim öllum,“ segir Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups.

Umsækjandi sem óskar eftir því að sækja skilríkin í Hagkaup hefur til þess sjö daga frá því skilríkið er tilbúið. Eftir þann tíma þarf viðkomandi að sækja það til Þjóðskrár í Borgartúni 21.