Kortavelta erlendra ferðamanna hérlendis nam rúmum 28,3 milljörðum króna í síðasta mánuði og jókst um 48,6% frá maímánuði. Veltan hefur ekki mælst hærri í júnímánuði frá upphafi mælinga, árið 2012, en hún mældist áður hæst árið 2018, þá var hún rúmir 25,5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í mánaðarlegri samantekt Rannsóknarseturs verslunarinnar (RSV).
Hlutfall erlendrar kortaveltu af heildarkortaveltu á Íslandi var 24,3% í júní síðastliðnum en sama hlutfall var tæp 26,8% í júní 2019.
Þá hefur velta innlendra greiðslukorta í verslunum og þjónustu erlendis ekki verið meiri frá upphafi mælinga árið 1997 en í maí síðastliðnum nam veltan 22,9 milljörðum króna. Velta innlendra greiðslukorta erlendis meira en tvöfaldaðist á milli ára.
Heildar greiðslukortavelta í júní síðasta mánuði nam rúmum 116,7 milljörðum og jókst um 27,4% á milli ára. Kortavelta Íslendinga hérlendis nam tæpum 88,4 milljörðum króna í júní síðastliðnum og jókst um 6, 5% á milli ára. Munaði þar mestu um að innlenda kortaveltu í þjónustu jókst um 13% á milli ára og nam 41,4 milljörðum í júní.
Innlend kortavelta í verslun á netinu nam rúmum 3,2 milljörðum kr. í júní sl. og jókst hún um rúm 11,4% á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Innlend kortavelta í þjónustu nam rúmum 41,4 milljarði kr. í júní sl. og jókst hún um rúm 13% á milli ára miðað við breytilegt verðlag.