Velta jókst í flestum atvinnugreinum landsins í mars og apríl 2025 samanborið við sömu mánuði árið 2024. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en þar segir að aukningin hafi verið mest í bílasölu, framleiðslu málma og fasteignastarfsemi.
Þá var einnig umtalsverður vöxtur í sjávarútvegi og flestum af einkennandi greinum ferðaþjónustu.
Minni vöxtur var hins vegar í heildverslun og ákveðnum tæknigreinum en í meirihluta atvinnugreina jókst velta umfram hækkun verðlags og hækkaði vísitala neysluverðs um 4,0% á tímabilinu.
„Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustunnar jókst um rúmlega 7% á tímabilinu og nam tæplega 139 milljörðum króna. Þróunin var nokkuð misjöfn á milli greina en helst stóð upp úr 54% aukning í veltu hjá heilsulindum og tæplega 12% í bílaleigu. Einnig var um 10% vöxtur í þjónustu ferðaskrifstofa tengdum ferðalögum erlendis en á sama tíma aðeins 3% vöxtur í þjónustu ferðaskrifstofa tengdum ferðalögum innanlands,“ segir í greiningu.
Þá jókst velta um tæplega 8% í farþegaflutningum með flugi og 7% í farþegaflutningum á sjó, vötnum og ám. Aftur á móti dróst hún saman um rúmlega 3% í farþegaflutningum á landi.
Velta í fasteignastarfsemi jókst um tæplega 12% og reyndist um 29 milljarðar króna á tímabilinu. Nokkuð jafn vöxtur var í flestum geirum greinarinnar en meginþorra veltunnar má jafnan rekja til leigutekna af atvinnuhúsnæði.
Í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð var nokkuð minni vöxtur eða rúmlega 5% og var veltan tæplega 105 milljarðar króna. Veltuaukningin var einkum borin uppi af tæplega 9% vexti í sérhæfðri byggingarstarfsemi en aðeins um 2% vöxtur var í byggingu húsnæðis og þróun byggingarverkefna.